Danir sagðir brjóta norrænar reglur Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. nóvember 2010 06:00 Forsætisráðherrar Norðurlandanna. Jens Stoltenberg frá Noregi, Mari Kiviniemi frá Finnlandi, Lars Løkke Rasmussen frá Danmörku, Jóhanna Sigurðardóttir og Fredrik Reinfeldt frá Svíþjóð á sameiginlegum blaðamannafundi í gær. Fréttablaðið/GVA
Norðurlönd Eitt helsta hitamálið á Norðurlandaráðsþingi í ár virðist ætla að snúast um þá stefnu danskra stjórnvalda að vísa úr landi norrænum ríkisborgurum sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda. Kirsten Ketscher, lagaprófessor við háskólann í Kaupmannahöfn, heldur því fram að með þessu brjóti dönsk stjórnvöld viðurkennda sáttmála, bæði á vettvangi Norðurlandanna og á vettvangi Evrópusambandsins. Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, tók undir þessa gagnrýni í ávarpi sínu við opnun Norðurlandaráðsþings á Grand Hóteli í gær. Hann sagði það grafa undan Norðurlandasamstarfinu ef norrænu ríkin túlka norræna sáttmála á ólíka vegu. Hann sagði það vekja sérstaka athygli að Birthe Rønn Hornbech, samþættingarráðherra Dana, skuli neita að gera grein fyrir þessari stefnu danskra stjórnvalda. Þema Norðurlandaráðsþings í ár er grænn vöxtur sem leið út úr kreppunni. Flokkahópur vinstri grænna í Norðurlandaráði notaði tilefnið til að koma á framfæri þeirri afstöðu sinni að skilgreina þurfi eignarhald á náttúruauðlindum í löggjöf og stjórnarskrám norrænu ríkjanna. Þingmenn frá Færeyjum og Grænlandi segja pólitíska samstöðu um þetta í þeirra löndum. Á sameiginlegum blaðamannafundi, sem forsætisráðherrar Norðurlandanna fimm héldu í Reykjavík í gær, sagði Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, það aðdáunarvert hve Íslendingum hafi tekist að vinna sig hratt og vel út úr kreppunni, þótt sú þróun hafi að sjálfsögðu verið sársaukafull. Fredrik Reinfeldt sagði sömuleiðis mikilvægt að Norðurlöndin hafi komið Íslandi til aðstoðar á sínum tíma. Margvísleg önnur mál koma til umræðu á þinginu. Meðal annars hefur danski þingmaðurinn Mogens Jensen kynnt hugmyndir um að Norðurlandaráð komi upp sameiginlegri norrænni menningarrás í sjónvarpi, sem á að vinna á móti yfirgnæfandi áhrifum bandarísks sjónvarpsefnis á Norðurlöndunum. Þinginu lýkur á morgun.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira