Innlent

Pústrar á Fiskideginum mikla

Frá Fiskideginum mikla
Frá Fiskideginum mikla
Margt fólk er á Fiskideginum mikla á Dalvík, en að sögn lögreglunnar á Akureyri fór allt vel fram þrátt fyrir talsverða ölvun í gærkvöldi og nótt. Eitthvað var um pústra, en engin líkamsárás hefur verið kærð.

Einn gisti fangageymslur á Akureyri, en sá var ósjálfbjarga af ölvun og hafði ekki í önnur hús að venda. Tvö til þrjú fíkniefnamál komu upp í umdæminu í nótt, öll tengd kannabisefnum og hvítu dufti til einkaneyslu.

Þá voru tíu ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal í gær, en þeir voru á 110 til 137 kílómetra hraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×