Innlent

Óæskilegt að skipta ráðherrum ört út

Það tekur eitt til tvö ár að læra að verða ráðherra og ekki æskilegt að skipta ört út ráðherrum, segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Ráðherrakapallinn nú snúist hins vegar um að treysta samstarf stjórnarflokkanna með því að hleypa fulltrúa órólegu deildarinnar að ríkisstjórnarborðinu.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur verið við völd í 19 mánuði. Enginn hefur viðameiri eða fjárfrekari málaflokka nú á sinni könnu en hinn nýi ráðherra Guðbjartur Hannesson sem nú er þriðji maðurinn til að setjast í stól félagsmálaráðherra í valdatíð Jóhönnu og raunar sjöundi félagsmálaráðherrann á fimm árum.

Hann er líka þriðji maðurinn til að setjast í stól heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu og sjötti heilbrigðisráðherrann á fimm árum. Gunnar Helgi segir það veikja störf inni í ráðuneytum að skipta svo ört um menn í brúnni. „Það er almennt ekki æskilegt að skipta oft um ráðherra. Það tekur ár eða tvö að læra að verða ráðherra og ná tökum á málaflokknum."

En hvað les Gunnar Helgi út úr þessum ráðherrakapli? „Forystumenn ríkisstjórnarinnar eru að reyna að ná tökum á samstarfinu sjálfu að ég held miklu frekar heldur en að þetta boði mikilar málefnabreytingar. Í raun og veru er verið að reyna að fá frið í það sem stundum er kallað þriðji flokkurinn í ríkisstjórninni, órólega deildin í Vinstri grænum. Fá hana að borðinu þannig að það sé hægt að semja við hana á einhverjum öðrum nótum en að það fari fram í fjölmiðlum," segir Gunnar Helgi.

Hann er ekki viss um brotthvarf fagráðherranna afli ríkisstjórninni vinsælda. „Ég held að það veiki ríkisstjórina að sumu leyti alla vega í almenningsálitinu til skemmri tíma og kannski faglega líka því þetta var mjög hæft fólk."


Tengdar fréttir

Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól

Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan.

Aðstoðarmaður Jóhönnu vill Rögnu á Bessastaði

Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, vill að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir að Rögnu og Gylfa Magnússonar verði sárt saknað.

Hyggja ekki á frama í pólitík

Hvorki Ragna Árnadóttir né Gylfi Magnússon sem létu af ráðherraembætti dag hyggja á frama í pólitík. Gylfi og Ragna settust í ráðherrastól þegar minnihlutastjórn Vinstri grænna og samfylkingarinnar var mynduð í byrjun síðasta árs. Þau gegndu því ráðherraembætti í tæpa 19 mánuði.

Guðbjartur kominn með lyklavöld í heilbrigðisráðuneytinu

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu af Álfheiði Ingadóttur forvera sínum klukkan hálffjögur í dag. Ragna Árnadóttir mun svo afhenda Ögmundi Jónassyni lykla af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu klukkan fjögur. Svo verða lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Því næst verða lyklaskipti í samgönguráðuneytinu og loks í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Hver er þessi Guðbjartur Hannesson?

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins

Ríkisráðsfundur á Bessastöðum - 20 mál sett á oddinn

Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan hálftólf þar sem ný ráðherraskipan verður kynnt. Ögmundur Jónasson kemur að nýju inn í ríkisstjórn og Guðbjartur Hannesson kemur nýr inn. Þá verður Árni Páll Árnason ráðherra Efnahags- og viðskiptamála og utanþingsráðherrarnir Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir hverfa á braut.

Nýir ráðherrar taka við - myndir

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tóku við nýjum ráðuneytum á Bessastöðum í dag eins og oft hefur verið sagt frá.

Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld

Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×