Hver er þessi Guðbjartur Hannesson? Erla Hlynsdóttir skrifar 2. september 2010 12:02 Guðbjartur Hannesson settist fyrist á þing fyrir aðeins þremur árum rúmum
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins. Guðbjartur var kjörinn þingmaður Samfylkingarinnar árið 2007 og situr sem fulltrúi Norðvesturkjördæmis. Eftir aðeins tveggja ára þingsetu var hann kjörinn forseti Alþingis og nú, þremur árum eftir að hann sest á þing, er Guðbjartur orðinn ráðherra félags- og heilbrigðismála í sameinuðu velferðarráðuneyti. Guðbjartur var formaður félags- og tryggingamálanefndar árin 2007 til 2009, hefur setið sem formaður fjárlaganefndar frá árinu 2007 og var í menntamálanefnd Alþingis árin 2007 til 2009. Hann á einnig að baki tveggja ára setu í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins og situr nú annað árið sitt í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins. Guðbjartur er fæddur 3. júní 1950 og er því sextugur að aldri. Hann er giftur Sigrúnu Ásmundsdóttir iðjuþjálfa og eiga þau tvær dætur. Rétt rúmlega tvítugur fór Guðbjartur að kenna við Grunnskóla Akraness, en þar er hann fæddur og uppalinn. Hann varð síðar skólastjóri skólans. Guðbjartur sat í bæjarstjórn Akranesskaupstaðar, var formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar. Hann tók alla tíð virkan þátt í starfi bæjarfélagsins og gaf tóninn í félagsmálastörfum sínum þegar hann var erindreki Bandalags íslenskra skáta á þrítugsaldrinum. Fyrir rúmum áratug, árið 1998, settist Guðbjartur í bankaráð Landsbanka Íslands. Þar starfaði hann til ársins 2003. Á árunum 2002 til 2003 sat hann einnig í bankaráði Heritable-bankans í London sem þá var orðinn eign Landsbankans. Menntun: Kennarapróf Kennaraháskóla Íslands 1971 Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978 Framhaldsnám í skólastjórn KHÍ 1992-1995 Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla 2005
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira