Innlent

Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól

Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson.

Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan.

Þingflokksmenn fengu í morgun að heyra tilögur Jóhönnu.

Guðbjartur mun taka við sameinuðu ráðuneyti Félags- trygginga og heilbrigðismála. Ekki er ljóst hver tekur við samgönguráðuneytinu af Kristjáni L. Möller.

Þá mun Árni Páll Árnason, fráfarandi félagsmálaráðherra, taka við embætti Efnahags- og viðskiptaráðherra.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×