Kom til Stoke fótboltans vegna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. september 2010 07:30 AFP
Eiður Smári Guðjohnsen gekk í fyrradag í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Stoke City og gerði eins árs samning við félagið. Í samtali við fréttastofu Sky Sports í gær var hann spurður um ástæðurnar fyrir því að hann valdi að ganga til liðs við Stoke. „Eingöngu fótboltans vegna," svaraði hann. „Það hefði verið auðvelt fyrir mig að vera áfram í Mónakó og njóta þar góða veðursins og fallegu bátanna. En það er knattspyrnan sem skiptir mig mestu máli og þess vegna tók ég þessa ákvörðun. Hún var auðveld þegar ég hugsa um þetta á þennan hátt." Eiður hafði um nokkra kosti að velja áður en hann valdi Stoke. Hann var til að mynda sterklega orðaður við Fulham. „Þeir hjá Stoke sýndu því mikinn áhuga að fá mig. Ég átti marga valkosti um allan heim í sannleika sagt og þetta réðst allt á síðustu stundu. En þeir sannfærðu mig einfaldlega um að koma hingað. Ég vildi bara fá að spila fótbolta," sagði Eiður enn fremur en hann var í láni hjá Tottenham á síðari hluta síðasta tímabils. „Þegar ég kom aftur í ensku úrvalsdeildina gerði ég mér grein fyrir að ég vildi spila í henni. Enska úrvalsdeildin er sú mest spennandi í heimi að mínu mati." Hann segir að Stoke sé metnaðarfullt félag sem stefni hátt. „Stoke hefur fengið nokkra nýja leikmenn í sumar og á síðustu tveimur tímabilum hefur liðið lent í 11. og 12. sæti. Vonandi verður mín reynsla til þess að liðið geti fest sig í sessi sem alvöru úrvalsdeildarlið sem allir þurfa að bera virðingu fyrir."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira