Innlent

Gríðarleg smáskilaboðanotkun á gamlárskvöldi

SMS. Mynd úr safni.
SMS. Mynd úr safni.

Íslendingar nýttu farsímana vel til þess að koma nýárskveðjum til vina og vandamanna á gamlárskvöld enda sýndu kerfi Símans sjöföldun á SMS sendingum á þriggja klukkustunda tímabili í kringum miðnætti þegar 1. janúar 2010 rann upp samkvæmt tilkynningu frá símanum.

Miðast þetta við meðaltalsnotkun á laugardagskvöldi. Þá varð ríflega fjórföldun á fjölda símtala sem hófust í 3G og GSM kerfum Símans. Fjöldi símtala úr farsímakerfum Símans á þessum þremur klukkustundum á gamlárskvöld var um áttatíu þúsund og SMS skilaboðin námu rúmlega 120 þúsund.

Þetta mætti því útleggja sem svo að annað hvert mannsbarn á Íslandi ýmist hringi í vini og ættingja á gamlárskvöld eða sendi SMS. Er þetta sambærilegt við notkunina um áramótin 2008-2009, þó ívíð minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×