Innlent

Flugumsjónamenn sömdu við Icelandair

Mynd/Teitur
Stjórn og samningarnefnd Félags Flugumsjónarmanna á Íslandi samdi í dag við Icelandair um nýjan kjarasamning og gildir hann til 31. janúar 2011. Kjarasamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki félagsmanna, segir Karl Friðriksson, formaður félagsins, í tilkynningu.

Karl segir að samningurinn sé á sömu nótum og Samtök atvinnulífisins hefur samið við önnur aðildarfélög að undanförnu. Hann væntir þess að samskonar samkomulag og við önnur flugfélög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×