Innlent

Slökkviliðið fór að Dvergabakka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd/ Stefán.
Mynd/ Stefán.
Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið að Dvergabakka klukkan korter í tíu í kvöld. Óttast var að eldur hefði komið upp í íbúð þar. Þegar fyrsti bíll kom á staðinn var ljóst að ekki var um meiriháttar eld að ræða og var þá allt lið fyrir utan bílinn sem var kominn á staðinn afturkallað. Íbúðin var reykræst. Nú er talið að einungis hafi verið um reyk af eldavél að ræða en ekki eld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×