Enski boltinn

Tevez ósáttur við ákvarðanir og æfingaálag City

Elvar Geir Magnússon skrifar
Carlos Tevez hefur raðað inn mörkum í vetur.
Carlos Tevez hefur raðað inn mörkum í vetur.

Carlos Tevez, markahrókur Manchester City, hefur hrist upp í hitanum fyrir nágrannaslaginn gegn Manchester United næsta laugardag.

Hann gagnrýnir æfingaálag knattspyrnustjórans Roberto Mancini og einnig þá ákvörðun félagsins að nota mynd af sér til að fara í taugarnar á erkifjendunum.

Tevez hefur verið frábær í búningi City en hann var ekki ánægður með að Mark Hughes var rekinn. Hann gagnrýnir nú þjálfunaraðferðir Mancini.

„Leikmenn eru ekki ánægðir með þetta. Við erum komnir í lokakafla á löngu og erfiðu tímabili. Það eru stórleikir og við erum þreyttir. Samt erum við að æfa tvisvar á dag, á morgnana og síðdeig. Daginn eftir æfum við svo í tvo tíma. Ég skil þetta ekki. En hann er þjálfarinn og ég er leikmaður. Hann ræður. Ég sætti mig við það," sagði Tevez.

Argentínumaðurinn notaði einnig tækifærið og sagðist vera óánægður með risaskilti sem sett var upp við borgarmörkin í Manchester. Á því var risamynd og stóð „Velkomin til Manchester". Talið er að City hafi sett þetta skilti upp til að pirra erkifjendur sína í United.

„Ég skildi aldrei tilganginn með þessu skilti. Til hvers var þetta? Var þetta til að bjóða mig velkominn til Manchester City eða til að pirra Manchester United? Enginn hefur sagt mér það. Ég skipti mér ekki að þessu en það er mikilvægt að fólk viti að ég kom ekki nálægt þessari ákvörðun. Hefði ég fengið að ráða hefði það ekki verið sett þarna upp. Ég ber virðingu fyrir öllum félögum sem ég hef spilað fyrir. Þetta skilti sýndi ekki virðingu er það? Ég fór ekki frá United til City til að skapa óróleika."

Spurður út í brottrekstur Hughes svaraði Tevez: „Eigendur félagsins ráða, þeir eiga þessa peninga. Ef þú spyrð mig hvort mér þótti þetta rétt ákvörðun þá svara ég nei. Ég spila fyrir alla knattspyrnustjóra, ég spila fyrir félagi og virði rétt þeirra sem taka ákvarðanir um breytingar. Þú býrð samt ekki til lið á einni nóttu. Mark hefði átt að fá lengri tíma. Hann er frábær knattspyrnustjóri og mun taka við öðru stórliði einn daginn."

Þetta allt saman lét Tevez út úr sér í viðtali við Daily Mail en ekki er líklegt að ummæli hans falli í góðan jarðveg hjá City. Lætin í kringum síðasta grannaslag voru mikil en þá lentu Tevez og Gary Neville í frægum deilum.

„Þessar deilur við Gary voru allar í hita leiksins. Þær eru að baki núna. Það eru engin vandamál milli mín og Gary," sagði Tevez sem vildi þó ekkert tjá sig um samskipti sín og Sir Alex Ferguson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×