Aðild myndi draga þrótt úr landbúnaði 1. mars 2010 02:00 Frá Búnaðarþingi Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Ólafur Ragnar Grímsson forseti ásamt fleiri gestum Búnaðarþings. Mynd/Tjörvi Bjarnason „
Landbúnaðurinn leggst kannski ekki af, en hann verður ekki jafn þróttmikill,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, um ástandið sem við blasir ef Ísland fær aðild að Evrópusambandinu. Haraldur setti Búnaðarþing Íslands í gær og kynnti þá meðal annars niðurstöður nýlegrar skoðanakönnunar sem Capacent gerði fyrir samtökin. Þar kemur fram að 56 prósent Íslendinga eru andvíg aðild að Evrópusambandinu, þriðjungurinn er hlynntur aðild en 11 prósent óákveðin. Nærri 96 prósent svarenda telja það skipta miklu máli að landbúnaður verði stundaður hér á landi til framtíðar, en 84 prósent telja það skipta miklu máli að Íslendingar séu ekki öðrum háðir um landbúnaðarafurðir. „Í þessari skoðanakönnun kemur það fram sem við höfum fundið meðal þjóðarinnar, en það er að hún kann mjög vel að meta sinn landbúnað. Hún segir þarna afdráttarlaust að hún vill standa vörð um hann, og það er ekki hægt ef við erum að sækja um aðild,“ segir Haraldur í samtali við Fréttablaðið og ítrekar andstöðu samtakanna við aðildarumsóknina. „Við fengum skýr skilaboð frá bændum á bændafundum í haust. Félagsmenn okkar kæra sig ekki um að samtök þeirra dragist til ábyrgðar,“ sagði Haraldur í ræðu sinni á Búnaðarþingi í gær. Á þinginu, sem stendur fram á miðvikudag, taka bændur meðal annars afstöðu til þess hvort þeir vilja taka þátt í samningahópum, sem skipaðir hafa verið í aðildarferlinu. „Við höfum tilnefnt í samningahópa en spyrjum okkur nú hvort við eigum að starfa þar áfram eða draga okkur til baka,“ sagði Haraldur í ræðu sinni. Í samtali við Fréttablaðið sagðist hann ekki leggja það til sjálfur að samtökin dragi sig úr hópunum, en telur að þingið verði að taka afstöðu til þess. „Það var skipað í þessa hópa á milli aðalfunda, en öll svona mál eru í höndum aðalfundar. Ég tel því rétt að þingið fari yfir þetta.“ Haraldur segir stöðu landbúnaðarins sterka. „Við erum samkeppnishæfari eftir að krónan féll en nokkurn tímann áður en á sama tíma erum við að kljást við hækkandi rekstrarkostnað eins og heimilin í landinu.“ Um skuldastöðu bænda segir Haraldur að líklega séu eitthvað í kringum hundrað bú sem séu í mjög alvarlegum málum. „Að auki er stór hluti bænda í erfiðleikum vegna þess að greiðslubyrðin hefur þyngst, en langstærsti hluti landbúnaðar stendur samt sterkur að vígi.“gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Erlent Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Innlent Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Innlent „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ Innlent Fleiri fréttir Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Sjá meira
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent