Bebe var falur fyrir 150 þúsund pund í upphafi ársins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. september 2010 12:45 Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Enska blaðið Daily Mail segir í dag að portúgalski leikmaðurinn Bebe hafi verið falur fyrir litla upphæð í byrjun ársins. Það kom mörgum á óvart þegar að Manchester United, eitt stærsta félag heims, keypti Bebe fyrri 7,4 milljónir punda. Alex Ferguson, stjóri liðsins, viðurkenndi svo að hafa aldrei séð hann spila. Þá var Bebe nýgenginn til liðs við úrvalsdeildarliðið Guimaraes sem fékk hann frítt frá C-deildarliðinu Estrela. En fyrrum þjálfari Estrela, Jorge Paxaio, segir í samtali við blaðið að félagið hafi reynt að selja Bebe í janúar síðastliðnum. „Við höfðum samband við félög víða um Evrópu og líka í Englandi og reyndum að selja Bebe. Hann var falur fyrir 150 þúsund pund," er haft eftir Paxaio. Estrela átti í miklum fjárhagsvandræðum og var að berjast við gjaldþrot. Bebe hafði þá rúmar tvær milljónir í árstekjur hjá félaginu en hann þénar það nú á einni viku hjá Manchester United. Bebe ólst upp og bjó á hæli fyrir heimilislausa rétt utan Lissabon þar til í sumar er hann gekk í raðir Guimaraes. Paxaio hrósaði Bebe og sagði hann góðan knattspyrnumann. „Manchester United hefur keypt frábæran leikmann."
Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Sjá meira