Grasið á Wembley er til skammar - líkt við skautasvell Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2010 22:15 Hér er boltinn kominn í mark Tottenham í gær. Mynd/AFP
Ástand grassins á þjóðarleikvangi Englendinga er mikið til umræðu eftir undanúrslitaleiki bikarkeppninnar sem fram fóru um helgina. Sumir ganga svo langt að segja grasið vera hreina skömm fyrir ensku þjóðina. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var allt annað en sáttur með leikvöllinn eftir 0-2 tap liðsins á móti Portsmouth um helgina og Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, var á sömu skoðun eftir 0-3 tap fyrir Chelsea daginn áður. Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands og Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hafa báðir gagnrýnt grasið á vellinum en það hefur verið skipt tíu sinnum um grasið á nýja Wembley síðan að hann var tekinn í notkun árið 2007. „Þetta er þjóðarskömm, bæði fyrir okkar iðngrein sem og fyrir breskt torf í heild sinni," sagði David Saltman, yfirvallarvörður á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff en sá völlur hýsti alla úrslitaleiki enska boltans á meðan að verið var að byggja nýja Wembley. Völlurinn var tyrfður fyrir fjórum til fimm vikum en hann þykir vera mjög harður og sumir hafa líkt honum við tyrft skautasvell. Það er nóg um að vera á vellinum á næstunni en sex leikir fara fram á vellinum frá 15. til 30. maí þar á meðal bikarúrslitaleikur Chelsea og Portsmouth og landsleikur Englands og Mexíkó. Þetta slæma ástand grasvallarins þykja ekki hjálpa til í baráttu Englendinga fyrir því að fá að halda HM 2018 og þá eru sumir farnir að kvíða fyirr stóra prófinu á næsta tímabili þegar Wembley-völlurinn á að hýsa sjálfan úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira