Innlent

Í stöðugu ástandi og fara á almenna deild í dag

Boði Logason skrifar
Áreksturinn varð við Álverið í Straumsvík
Áreksturinn varð við Álverið í Straumsvík
Krakkarnir sem lentu í árekstri á Reykjanesbraut í gær, og voru á gjörgæslu í nótt, eru í stöðugu ástandi og eru á leið á almenna deild í dag. Þetta segir svæfingarlæknir á gjörgæsludeild Landspítala.

Áreksturinn var mjög harður en tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman. Allir farþegar bílanna voru fluttir á sjúkrahús og dvöldu þar í nótt. Tveir voru á gjörgæsludeild í gær og kom fram að annar þeirra væri í lífshættu. Ekki er vitað um tildrög slyssins. Allir eru í kringum tvítugt.


Tengdar fréttir

Einn í lífshættu eftir árekstur á Reykjanesbraut

Allir þeir sem voru fluttir á slysadeild vegna slyssins við Álverið í Straumsvík í dag verða á Landspítalanum í nótt. Fjórir eru á almennum deildum og þá eru tveir sem eru á gjörgæslu. Annar þeirra er í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×