Gerrard ósáttur með harða gagnrýni á Torres og Hodgson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2010 16:30 Steven Gerrard. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er ósáttur með harða og að hans mati ósanngjarna gagnrýni á framherjann Fernando Torres og knattspyrnustjórann Roy Hodgson. Torres hefur verið gagnrýndur fyrir skort á mörkum á tímabilinu og byrjun Roy Hodgson hefur gengið illa þar sem botninunum var náð með tapi á heimavelli á móti Blackpool. Tapið þýddi að Liverpool-liðið situr nú í fallsæti. „Þetta er alveg út í hött. Það er auðvelt að horfa á fótboltaleik og segja að líkamstjáning framherjans sé ekki rétt ef hann skorar ekki eða býr eitthvað til úr engu," sagði Steven Gerrard um gagnrýnina á Fernando Torres. „Þegar leikmaður er ekki kominn í form eða er að ná sér góðum eftir meiðsli þá er það bara eðlilegt að líkamstjáning hans sé ekki fullkomin," sagði Gerrard. „Fólk segir það sama um mig þegar ég er að spila mig í gang eftir meiðsli eða þegar ég er að spila meiddur," sagði Gerrard. „Fernando hefur sýnt það hversu góður hann er þann tíma sem hann hefur spilað hér. Það sjá allir sem vilja sjá að hann er enn að koma sér í sitt besta form," sagði Gerrard og bætti við: „Ég trúi á hann og hann er okkar aðalmaður. Hann er frábær leikmaður og okkar aðal-markaskorari. Við þurfum allir að styðja við bakið á Fernando og hjálpa honum að komast í það form sem hann var í þegar hann spilaði sitt fyrsta tímabil hér. Í svoleiðis formi þá er hann besti framherji í heimi," sagði Gerrard. „Það er líka ósanngjarnt að kenna stjóranum um lélega byrjun á tímabilinu. Við erum allir í þessu saman og þá á ég við alla hjá félaginu. Við þurfum að sætta okkur við okkar ábyrgð og standa saman ef við ætlum að snúa þessu við. Það væri fullkomin byrjun að vinna derby-leikinn á móti Everton," sagði Gerrard.
Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Handbolti „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Handbolti Alfreð stóð með Degi: „Ekki eins og best verður á kosið“ Handbolti „Langstærsta prófið“ en Danir hafa misstigið sig Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira