Íslenski boltinn

Þorvaldur áfram með Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorvaldur Örlygsson.
Þorvaldur Örlygsson.

Þorvaldur Örlygsson verður áfram þjálfari Fram en þetta staðfesti hann í samtali við Vísi.

„Ég á eitt ár eftir af mínum samningi og verð áfram með liðið," sagði Þorvaldur sem hefur nú stýrt Fram í tvö ár.

„Mér líst vel á að halda áfram og sinna áfram þeirri vinnu sem verður að sinna, bæði innan vallar sem utan - gera liðið betra og ná fjárhagnum í lag líka."

„Það þarf að hugsa vel um peninginn í þessu árferði og það á einnig við um okkur. Það vill taka á og tekur langan tíma. En Fram er ekki illa statt. Mér finnst við komnir vel á veg í þessu ferli og útlitið fyrir næsta ár er gott."

Fram varð í fimmta sæti Pepsi-deildar karla í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×