Innlent

Umframorka Landsvirkjunar eftirsótt

Landsvirkjun á 40 MW til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Iðnaðarráðherra hefur nefnt þann möguleika að álver í Helguvík fái þá orku til bráðabirgða. Gagnaver á Norðurlandi og kísilmálmverksmiðja í Helguvík sækjast eftir þessum sömu megavöttum.Fréttablaðið/Vilhelm
Landsvirkjun á 40 MW til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Iðnaðarráðherra hefur nefnt þann möguleika að álver í Helguvík fái þá orku til bráðabirgða. Gagnaver á Norðurlandi og kísilmálmverksmiðja í Helguvík sækjast eftir þessum sömu megavöttum.Fréttablaðið/Vilhelm

Mikil sókn er í þá umfram­orku sem til er í raforkukerfi Landsvirkjunar. Að minnsta kosti þrjú stóriðjufyrirtæki sækjast eftir umframorkunni. „Fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunar.

Gagnaver Verne Holding á Keflavíkurflugvelli hefur þegar tryggt sér 25 megavött úr þeim potti, sem Landsvirkjun hefur til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Eftir standa þá um 40 megavött. Gagnaver, sem fyrirtækið Greenstone hyggst reisa við Blönduós, og kísilmálmverksmiðja, sem Tomahawk er með á prjónunum í Helguvík, ásælast bæði þá orku.

Að auki nefndi Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra nýlega að hún sæi ekkert því til fyrirstöðu að Landsvirkjun ráðstafaði þessari sömu umframorku til álvers Norðuráls í Helguvík en raforkuþörf þess hefur ekki enn verið leyst.

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti sumarið 2007 að gera ekki nýja samninga um sölu raforku til álvera á Suðvesturlandi. Í samræmi við það hefur Landsvirkjun engar viðræður átt um að leggja Norðuráli til raforku vegna Helguvíkurverkefnisins.

Katrín Júlíusdóttir sagði við Fréttablaðið að hún telji koma til greina að Landsvirkjun kanni möguleika á að útvega álverinu í Helguvík tímabundið orku af umframorku sinni: „Mín grundvallarafstaða er sú að Landsvirkjun eigi að reka með því sjónarmiði að hún fái sem mest fyrir sína orku,“ sagði Katrín. Ef stjórn fyrirtækisins telji þjóna því markmiði gæti fyrirtækið ákveðið að brúa bil fyrir álverið í Helguvík, meðan unnið er að því að byggja upp afkastagetu jarðvarmavirkjana á Hengilssvæðinu og Reykjanesi.

„Auðvitað er alltaf hægt að endurskoða svona samþykktir,“ segir Agnar Olsen. „Það er ekki komið í neina alvöruumræðu; það á alveg eftir að skoða það betur.“

Landsvirkjun hefði enga aðkomu haft að orkuöflun álversins í Helguvík.

Umframafl Landsvirkjunar nemur nú um 40 megavöttum af 1.860 megavatta uppsettu afli sem framleitt er með 37 vélum í virkjunum Landsvirkjunar.

peturg@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×