Óvissa um hvaða lög gilda 7. janúar 2010 05:00 Ríkislögmaður virðist ekki deila vissu forsetans um að eldri lög um Icesave taki gildi verði þau nýju felld.fréttablaðið/gva
Í yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um synjunina, er fullyrt að felli þjóðin lögin í þjóðaratkvæðagreiðslunni, séu eldri lög um ríkisábyrgð, sem samþykkt voru í lok ágúst, áfram í gildi. Lögspekingar virðast ekki jafnvissir um þetta og forsetinn. Í yfirlýsingu Ólafs segir: „Verði lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu, gilda þau að sjálfsögðu áfram. Verði úrslitin á annan veg, eru engu að síður áfram í gildi lög nr. 96/2009 sem Alþingi samþykkti 28. ágúst 2009 á grundvelli samkomulags við stjórnvöld í Hollandi og Bretlandi, en þau fela í sér viðurkenningu Íslendinga á skuldbindingum sínum.“ Í minnisblaði fjármálaráðherra til forsetans, sem farið var yfir í aðdraganda ákvarðanatökunnar, er hins vegar sagt að með öllu sé óvíst hvort þau lög gangi í gildi. Ótvíræð ríkisábyrgð þurfi að vera til staðar, samkvæmt lagabókstafnum, til að þau taki gildi. „Ríkislögmaður getur ekki vottað að málið sé klárt…“ segir þar. Björg Thorarensen, deildarforseti lagadeildar HÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið að væru lögin felld yrðu lögin frá í sumar í gildi. Ríkisábyrgðin yrði hins vegar ekki virk. „Hún verður ekki virk nema fallist verði á fyrirvarana að öllu leyti af viðsemjendum.“ Hollendingum og Bretar hafa þegar hafnað hluta fyrirvara.- kóp
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira