„Þeir voru bara betri," sagði Sir Alex Ferguson eftir að hans menn í Manchester United lágu gegn Everton á Goodison Park.
„Við byrjuðum leikinn vel en það er mjög slæmt að fá á sig mark í andlitið svona fljótt eftir að komast yfir. Við vorum bara næst bestir í seinni hálfleiknum," sagði Ferguson.
„Þetta eru mikil vonbrigði og leikmenn eru miður sín. Þeir eru manneskjur, spila fyrir Manchester United og vilja ekki tapa leikjum. Það gerðist samt í dag. Þetta eru slæm úrslit og það á tímapunkti sem við höfum ekki efni á svona úrslitum."