Enski boltinn

Rooney ekki með gegn Blackburn

Elvar Geir Magnússon skrifar

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Wayne Rooney verði ekki með liðinu gegn Blackburn á sunnudag í ensku úrvalsdeildinni.

Rooney var mættur í slaginn gegn FC Bayern í Meistaradeildinni á miðvikudag en byrjaði að haltra í fyrri hálfleiknum og fór af velli snemma í þeim síðari.

Ferguson segir meiðsli Rooney aðeins smávægileg en leikmaðurinn verði þó fjarri góðu gamni í næsta leik. Hann ætti að vera orðinn klár fyrir nágrannaslaginn gegn Manchester City þann 17. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×