Vilja kæra fyrir þjóðarmorð 4. febrúar 2010 03:45 Ógnarstjórn forsetans er talin sú versta í heimi af líknarsamtökum. fréttablaðið/ap
Stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur verið uppálagt af áfrýjunardómstól að endurskoða niðurstöðu sína um að ákæra ekki Omar al-Bashir, forseta Súdan, fyrir þjóðarmorð í Darfur-héraði. Niðurstaða dómstólsins í Haag er talin leggja grunninn að því að al-Bashir komist upp með að hafa skipulagt þjóðarhreinsanir í héraðinu. Stríðsglæpadómstóllinn sendi frá sér ákæru á hendur forsetanum í mars í fyrra fyrir ýmsa aðra glæpi. Þetta var í fyrsta sinn sem stríðsglæpadómstóllinn gaf frá sér ákæru á hendur sitjandi þjóðarleiðtoga. Forsetinn neitaði sök. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 300 þúsund manns hafi fallið í átökum uppreisnarmanna og stjórnarhers í Darfúr og sex milljónir manna séu á vergangi. Saksóknari sagði þá að al-Bashir bæri ábyrgð á morðum, nauðgunum og pyntingum í héraðinu auk þess sem hann sé ábyrgur fyrir að fjölmargir íbúar hafi verið fluttir nauðugir frá heimilum sínum um leið og öllum eigum þeirra hafi verið rænt. Síðan í mars hefur forsetinn ferðast til þeirra ríkja sem eru honum vinsamleg en afturkallað heimsóknir til ríkja sem hann telur líkleg til að framselja hann til Haag. Súdanstjórn hefur rekið þrettán líknarsamtök úr landi á tæpu ári og aukið enn á neyð milljóna manna sem þjást vegna stríðsástandsins sem hefur varað lengi í héraðinu. - shá
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira