Innlent

Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa

Mörg hverfi í Santíagó eru illa leikin eftir skjálftann. Skemmdirnar eru þó með minnsta móti í hverfinu Las Condes þar sem Harpa býr.Mynd/Úr einkasafni
Mörg hverfi í Santíagó eru illa leikin eftir skjálftann. Skemmdirnar eru þó með minnsta móti í hverfinu Las Condes þar sem Harpa býr.Mynd/Úr einkasafni

„Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa,“ segir Harpa Elín Haraldsdóttir, sem var sofandi á heimili sínu, á níundu hæð fjölbýlishúss í hverfinu Las Condes í Santíagó, þegar skjálftinn reið yfir. „Veggirnir bylgjuðust um og allt fór af stað inni hjá mér – sjónvarpið lenti úti í horni og kryddið hentist yfir eldhúsgólfið. En það brotnaði bara eitt glas, sem er til marks um góðan undirbúning hér í Chile. Þeir hafa lært af reynslunni í byggingu nýrra húsa. Eyðileggingin í mínu hverfi er í lágmarki.“

Sömu sögu er ekki að segja af öðrum og eldri hverfum í Santíagó, sem mörg hver eru illa farin. Mörg hús hrundu í miðbænum, þar er nú fjöldi fólks heimilislaus og hafa margir hverjir hvorki aðgang að vatni né rafmagni.

Harpa segir náttúruna halda áfram að minna á kraft sinn eftir stóra skjálftann. Um 75 eftirskjálftar hafi riðið yfir sterkari en 4 á Richter. Hún segir engan sjást á götunum í sínu hverfi og varla sé bíll á ferð. Nær allar verslanir séu lokaðar og samgöngur liggi niðri. Í öðrum hverfum, þar sem eyðilegging varð meiri, ríki meiri upplausn. „Fólk er almennt mjög slegið, sorgmætt og óöruggt með framhaldið. Það er enn að reyna að hafa uppi á ættingjum sínum og vinum og reyna að gera sér grein fyrir hvað er í gangi. Það er þó sterk tilfinning fyrir því að nú þurfi þjóðin að standa saman og vinna að uppbyggingunni.“ - hhs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×