Innlent

Ómar sigraði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi

Ómar Stefánsson.
Ómar Stefánsson.

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi, sigraði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi sem fór fram í dag. Hann fékk 382 atkvæði eða tæplega 40% greiddra atkvæða. Gísli Tryggvason sem sóttist eftir fyrsta sætinu hafnaði í fimmta. Einar Kristján Jónsson keppti einnig um oddvitasætið en er ekki meðal sex efstu.

„Ég er ofboðslega ánægður. Ég á trausta stuðningsmenn og góða fjölskyldu,“ segir Ómar og bætir við að framsóknarmenn hafi í dag styrkt upp öflugum og sigurstranglegum lista. Komandi kosningabaráttan leggst vel í Ómar.

Á kjörskrá voru 1.817. Atkvæði greiddu 966, gild atkvæði voru 936 og ógild 30.

Lokatölur:

1. Ómar Stefánsson er í 1. sæti með 382 atkvæði.

2. Una María Óskarsdóttir er í 1.-2. sæti með 345 atkvæði.

3. Andrés Pétursson er í 1.-3. sæti með 385 atkvæð.

4. Alexander Arnarsson er í 1.-4. sæti með 433 atkvæði.

5. Gísli Tryggvason er í 1.-5. sæti með 443 atkvæði.

6. Ólöf Pálína Úlfarsdóttir er í 1.-6. sæti með 463 atkvæði.




Tengdar fréttir

Tæplega 500 hafa kosið í Kópavogi

Tæplega 500 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi klukkan tvö. Þrír takast á um fyrsta sætið í prófkjörinu. „Það hefur verið jöfn og þétt þátttaka," segir Haukur Ingibergsson, formaður kjörstjórnar. Hann segir að fyrstu tölur verði lesnar skömmu eftir að kjörfundi lýkur klukkan 18.

Ómar efstur - Una María í öðru sæti

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi, er efstur í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi þegar talinn hafa verið 810 atkvæði. Rúmlega 1800 voru á kjörskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×