Innlent

Listi Grindvíkinga stofnaður

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Nýtt framboð Lista Grindvíkinga var formlega stofnað á dögunum og mætti fjöldi fólks til fundarins. Að fundinum stóð breiður hópur fólks sem hefur áhuga á að gera Grindavík að betri bæ fyrir bæjarbúa á komandi árum og viðhafa heiðarleg og opinská vinnubrögð, að fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Mikið hefur gengið á í bæjarpólitíkinni í Grindavík á yfirstandandi kjörtímabili og til að mynda fjórir meirihlutar verið myndaðir.

„Grindavík á bjarta framtíð með aðkomu fólks sem hefur hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.

Á stofnfundum var samþykkt eftirfarandi heiðursmannasamkomulag: „Fari svo að frambjóðendur verði bæjarfulltrúar skulu þeir að sitja í nafni listans. Hafi þeir á einhverjum tímapunkti kjörtímabilsins í hyggju að yfirgefa Lista Grindvíkinga og ganga til liðs við annan flokk skulu þeir afsala sér setu sem bæjarfulltrúar og hleypa næsta manni af Lista Grindvíkinga inn.“

Málefnastarf félagsins er að fara af stað. Aðalfundur félagsins verður haldinn fljótlega og á þeim fundi verður framboðslistinn kynntur.

Fimm manna bráðabirgðastjórn var skipuð fram að aðalfundinum:

Formaður: Dagbjartur Willardsson

Varaformaður: Gunnþór Sigurgeirsson

Ritari: Kristín María Birgisdóttir

Gjaldkeri: Erla Ósk Pétursdóttir

Meðstjórnandi: Lovísa Hilmarsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×