Cole: Var freistandi að fara frá Englandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2010 23:15 Ashley Cole í leik með Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Ashley Cole, leikmaður Chelsea, hefur viðurkennt að hann hafi íhugað að fara frá félaginu í sumar en að Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri, hafi sannfært hann um að vera áfram. Cole var sterklega orðaður við Real Madrid í sumar þar sem hans gamli stjóri hjá Chelsea, Jose Mourinho, var við stjórnvölinn. Umfjöllun ensku pressunar um einkalíf Cole og skilnaðinn við eiginkonuna Cheryl ýtti undir þær sögusagnir þar sem hann var sagður vilja flytja frá Englandi. „Þetta voru erfiðir tímar fyrir mig - afar erfiðir," sagði Cole í viðtali við ESPN. „Ég íhugaði að fara en Ancelotti gerði mér grein fyrir að hann vildi hafa mig áfram. Leikmennirnir vildu ekki heldur að ég færi." „Ég er feginn því að ég ákvað að vera áfram. Það voru margir sem sögðu að ég væri að gefast upp en ég er hér enn. Þetta hefur verið erfitt en vonandi er það versta afstaðið." Cole sagði enn fremur að hann vildi gjarnan spila hjá Chelsea þar til ferli hans lýkur en hann er nú 29 ára gamall. „Ég vildi gjarnan geta sagt að ég ætti fjögur ár á toppnum eftir en í sannleika sagt þá er ég bara að taka eitt ár fyrir í einu og hlusta á hvað líkaminn segir mér. Ég er 29 ára en líður eins og ég sé 35 eða 40 ára. Það er stundum erfitt að fara fram úr á morgnana."
Mest lesið Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Gylfi með til Eistlands Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira