Íslenski boltinn

Auðun og Grétar hættir hjá Grindavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Auðun og Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Auðun og Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Auðun Helgason og Grétar Ólafur Hjartarson munu ekki leika með Grindavík í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Auðun og knattspyrnudeild Grindavíkur hafa komist að samkomulagi um starfslok en Auðun hefur aðeins leikið í eitt ár með félaginu.

Þá vekur athygli að Grindavík ætlar ekki að bjóða Grétari Ólafi nýjan samning en núverandi samningur hans er að renna út.

Óljóst er hvar þessir strákar spila á næstu leiktíð.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×