Innlent

Formennirnir upplýstir um gang viðræðnanna

Samninganefnd Íslands í Icesave deilunni átti rúmlega tveggja klukkustundarfund með fulltrúum Bretlands og Hollands í Lundúnum í dag. Ekkert hefur verið látið uppi um efni fundarins, en samninganefndarmenn kynna ráðherrum og forystufólki stjórnarandstöðuflokkanna gang viðræðnanna nú í kvöld.

Íslendingar svöruðu gagntilboði Breta og Hollendinga frá því fyrir viku með bréfi og hafa sagt að ekki sé hægt að semja upp á nýtt á þeim grunni sem Bretar og Hollendingar lögðu til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×