Erlent

Blóðugir bardagar á Jamaica

Óli Tynes skrifar
Christopher Coke
Christopher Coke

Tuttugu og sjö manns hafa fallið í bardögum milli lögreglumanna og liðsmanna eiturlyfjabarónsins Christiphers Coke á Jamaica.

Lögreglan segir að langflestir hafi verið óbreyttir borgarar. Stjórnvöld á Jamaica hafa fallist á að framselja Coke til Bandaríkjanna þar sem bíða hans réttarhöld fyrir eiturlyfjasmygl og ólögleg viðskipti með skotvopn.

En Coke á sér marga stuðningsmenn í fátækrahverfum Kingstons, höfuðborgar Jamaica.

Fyrir utan vopnaða liðsmenn nýtur hann stuðnings íbúanna sem hann hefur hjálpað með matar- og peningafjögum.

Hann hefur einnig borgað fyrir skólagöngu barna og byggt heilsugæslustöðvar. Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í nokkrum hverfum í Kingston og Bandaríkin hafa lokað sendiráði sínu þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×