„Skrítið að segja lögin ómerk“ 8. janúar 2010 04:30 Mynd/GVA
Ólafur Ragnar Grímsson er þeirrar skoðunar, sem fyrr, að felli þjóðin ný lög um Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu þá verði eldri lög um ríkisábyrgð, sem samþykkt voru í lok ágúst, eftir sem áður í gildi. Um þetta ríkir þó óvissa þar sem ríkisábyrgðin sem lögin fjalla um er háð því að viðsemjendur Íslands, Bretar og Hollendingar, viðurkenni þá fyrirvara sem þar eru tilgreindir. Björg Thorarensen, deildarforseti lagadeildar HÍ, hefur bent á að lögin taki gildi en ríkisábyrgðin verði hins vegar ekki virk nema viðsemjendur fallist á fyrirvarana. Um þetta atriði var Ólafur ítrekað spurður á Bessastöðum í gær og hvort lögin geti tekið gildi ef ríkisábyrgðin verður ekki virk. „Mér finnst skrítið að segja núna að þau séu ómerk og hafi í raun ekkert innihald," sagði Ólafur. Ríkisábyrgðin í lögunum er háð samþykki Breta og Hollendinga, sem þeir hafa hafnað. Ólafur sagði að sér væri það „fyllilega kunnugt". Eins að ef nýju lögin verði felld verði viðsemjendur Íslands þá að meta stöðuna en að hans mati „ríki engin stór óvissa um hver staðan verður þá". Hann segir að ríkin tvö hljóti að virða lýðræðislega niðurstöðu Íslendinga. Rukkaður um þá staðreynd að Bretar og Hollendingar hafi nú þegar hafnað fyrirvörum fyrri laga sagðist Ólafur ekki vilja velta framhaldinu of mikið fyrir sér hver afstaða Breta og Hollendinga yrði verði lögin felld í þjóðaratkvæðagreiðslunni. - sjá síðu 8 til 12 / shá
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Sjá meira