Kvartað vegna utanvegaaksturs í Mosfellsbæ 22. júní 2010 15:36 Nokkuð hefur borið á utanvegaakstri Mosfellsbæ.
Nokkuð hefur borið á kvörtunum um utanvegaakstur í Mosfellsbæ að undanförnu og virðist umferð jeppa, fjórhjóla og torfæruhjóla utan merktra vegslóða í hlíðum fella í Mosfellsbæ, s.s. Úlfarsfells og Æsustaðafells, vera algengur. Íslenskur jarðvegur er laus í sér og viðkvæmur fyrir átroðningi, og því sérstaklega þörf á að fylgja reglum um utanvegaakstur fast eftir. Skv. náttúruverndarlögum er óheimilt að aka vélknúnum ökutækjum utan vega, nema um sé að ræða snævi þakta og frosna jörð. Ferðalangar á vélknúnum farartækjum eru vinsamlegast beðnir um að virða þessar reglur og halda sig á fyrirfram mörkuðum vegslóðum. Af gefnu tilefni er vakin athygli á því að akstur vélknúinna farartækja, þ.m.t. fjórhjóla og torfæruhjóla, er óheimill á reiðstígum vegna hættu á skemmdum og vegna slysahættu. Það er mikilvægt að eigendur vélknúinna ökutækja sem bjóða uppá utanvegaakstur fylgi þessum reglum vel eftir og leiðbeini þeim sem ekki þekkja þær. Í flestum tilfellum eru þessir hópar til fyrirmyndar, en það þarf ekki marga til að valda varanlegum skemmdum á viðkvæmdri náttúru. Ef íbúar Mosfellsbæjar verða varir við utanvegaakstur að þessu tagi er þeim bent á að tilkynna það til lögreglunnar í Mosfellsbæ í síma 444 1190 eða í Þjónustumiðstöð Mosfellsbæjar við Völuteig í síma 525 6780.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Erlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira