Enski boltinn

Deildabikarinn áfram hjá Man Utd

Elvar Geir Magnússon skrifar
Þetta var í fyrsta sinn í 20 ár sem lið nær að verja þennan titil.
Þetta var í fyrsta sinn í 20 ár sem lið nær að verja þennan titil.

Manchester United varði í dag deildabikarmeistaratitil sinn með því að leggja Aston Villa 2-1 í úrslitaleik á Wembley leikvanginum. Michael Owen og Wayne Rooney skoruðu fyrir Englandsmeistarana.

Aston Villa tók reyndar forystuna strax á fimmtu mínútu þegar James Milner skoraði úr vítaspyrnu. Vítið var réttilega dæmt eftir að Nemanja Vidic braut á Gabriel Agbonlahor.

Stuðningsmenn Villa voru óánægðir með að Vidic hafi ekki fengið að líta rauða spjaldið, skiljanlega enda var sá serbneski aftasti varnarmaður.

Richard Dunne gerði svo slæm mistök á 13. mínútu. Búlgarinn Dimitar Berbatov, sem átti skínandi leik, hirti boltann af Dunne og á endanum skoraði Michael Owen laglegt mark.

Owen fór síðan meiddur af velli skömmu fyrir hálfleik og inn fyrir hann kom Wayne Rooney sem einmitt skoraði sigurmarkið. Mark Rooney var með skalla eftir fyrirgjöf Antonio Valencia á 74. mínútu.

Rooney hefði getað bætt við öðru marki skömmu síðar en þá hafnaði skalli hans í stönginni. Villa tókst ekki að skapa sér mörg færi og United hrósaði 2-1 sigri. Þetta er fjórði deildabikarmeistaratitill Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×