Enski boltinn

Ferguson talar um hugsanlega endurkomu Ronaldo á Old Trafford

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sir Alex Ferguson og Cristiano Ronaldo.
Sir Alex Ferguson og Cristiano Ronaldo. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist búast alveg eins við því að Cristiano Ronaldo spili einhvern tímann aftur fyrir Manchester United en félagið seldi Portúgalann til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda í sumar.

„Það er ekki auðvelt að spila fyrir félag eins og Real Madrid því þá þarftu að taka þátt í öllum sirkusnum í kringum liðið," segir Alex Ferguson.

„Ronaldo þekkir vel kosti Manchester United og Ruud van Nistelrooy hefur talað um þá líka því hér fá leikmenn skjól frá óaðkomandi áreiti. Hér koma leikmenn á æfingu á Carrington á hverjum degi og þar eru engir nema leikmenn og þjálfararnir," sagði Alex Ferguson og bætti við:

„Þegar þú mætir á æfingu hjá Real Madrid eða öðrum stórum klúbbum á Ítalíu þá eru 2000 manns að horfa á æfingarnar og fjölmiðlarnir eru að mynda allar æfingar," sagði Alex Ferguson

„Leikmenn fá algjöran frið hjá Manchester United og við pössum upp á okkar leikmenn. Það kæmi mér ekki á óvart ef Ronaldo vildi koma aftur til United. Ég tel allavega að hann verði ekki hjá Real Madrid út ferilinn, því það bíða hans aðrar áskoranir," sagði Alex Ferguson sem heldur enn góðu sambandi við Portúgalann.

„Ég er enn í sambandi við hann því þetta er góður strákur," sagði skoski stjóri í viðtali við Sky Sports.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×