Innlent

Evrópubúar sækja í flugnám hjá Keili

Keilir er með nýlegar kennsluflugvélar og hýsir erlenda flugnema í fjölbýlishúsum sem bandaríski herinn byggði á Keflavíkurflugvelli. Fréttablaðið/GVA
Keilir er með nýlegar kennsluflugvélar og hýsir erlenda flugnema í fjölbýlishúsum sem bandaríski herinn byggði á Keflavíkurflugvelli. Fréttablaðið/GVA
Tafir hafa orðið á því að þjálfun kínverskra atvinnuflugmanna hefjist í flugskóla Keilis í Reykjanesbæ. Samkvæmt skýrslu sem Capacent vann fyrir bæjarstjórn Reykjanesbæjar nýlega átti verkefnið að hefjast í janúar og skapa tólf störf á árinu. Af því varð ekki. Nú er horft til þess að verkefnið hefjist í haust, segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis. „Kína er stórt land og vinnur á allt öðru tempói en við en það er verið að vinna í þessu.“

„Mín trú er sú að þessi tólf störf gætu orðið að veruleika á árinu,“ sagði Hjálmar Árnason. Í skýrslu Capacent sagði að strax í upphafi hefði verið gert ráð fyrir að tuttugu til fimmtíu kínverskir flugnemar dveldu hérlendis við nám í þrjátíu mánuði.

„Þeim mun síðan fjölga á næstu árum og er áætlað að þeir verði 500 eftir fjögur ár. Fyrir hverja fimmtán nemendur þarf einn flugkennara,“ sagði í skýrslu Capacent.

„Mikil eftirspurn er eftir þessu námi og samkeppnishæfni Keilis mikil þar sem öll aðstaða er til staðar og hægt að bjóða húsnæði og flug á mjög hagstæðu verði til þessara aðila.“

Capacent áætlaði að flugverkefnið skapaði 49 ársverk í Reykjanesbæ og 149 milljónir króna í launatekjur á næstu fjórum árum. Þetta væri þó varfærið mat, enda aðeins reiknað með störfum tengdum flugverkefnum sem eru komin lengst á veg.

Þótt Kínverjarnir láti bíða eftir sér gengur flugkennsla vel hjá Keili og segir Hjálmar að eftirspurnin hafi aldrei verið meiri. „Við verðum vör við gríðarlega fjölgun fyrirspurna og skráninga,“ segir Hjálmar.

Nýlega var fyrsti erlendi atvinnuflugmaðurinn útskrifaður frá Keili. Sá er frá Möltu. Á næstu vikum hefja um tíu Evrópubúar atvinnuflugmannsnám hjá Keili. Hjálmar segir að gæði námsins séu mikil, kennsluflugvélar nýjar og með þeim bestu sem þekkjast. Aðbúnaður sé góður og vegna þess hve krónan er veik um þessar mundir sé mjög hagstætt fyrir evrópska flugnema að sækja sér menntun á Íslandi um þessar mundir. „Það getur verið allt að helmingsmunur á verðinu,“ segir Hjálmar. „Þetta er einn af kostum hinnar veiku krónu.“

Fleiri verkefni séu í burðarliðnum og hann hafi fulla trú á því að tólf ný störf verði til í fluginu hjá Keili þetta árið.

peturg@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×