Mörður spyr forseta Alþingis um níumenningana Erla Hlynsdóttir skrifar 6. október 2010 14:11 Mörður Árnason lagði fram fyrirspurn um níumenningana á Alþingi fyrr í dag Mynd: Valgarður
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis um „atvikin í Alþingishúsinu þann 8. desember 2008," eins og hann orðar það. Þennan dag áttu sér stað þeir atburðir sem urðu til þess að níumenningarnir svokölluðu voru ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi. Þær spurningar sem Mörður beinir til forseta Alþingis eru: „Með hvaða hætti ræðir skrifstofustjóri Alþingis um 100. gr. hegningarlaga í beiðni sem hann sendi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins 19. desember 2008 vegna atvika í Alþingishúsinu 8. þess mánaðar?" og „Telur forseti að þessi grein hegningarlaga, um mann „sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin," eigi við um atvikin sem til báru 8. desember 2008?" Mörður óskar skriflegs svars við fyrirspurninni. Aðeins eru um þrjár vikur síðan Mörður skrifaði bloggfærslu um málssóknina gegn níumenningunum undir fyrirsögninni; „Hættiði þessari vitleysu." Þar lagði hann til að ákæran yrði fellt niður og sagði: „Þessi málsókn fyrir árás á Alþingi auðvitað algerlega fáránleg" Mörður bentir þar á að hinn eiginlegi kærandi í málinu sé sjálft Alþingi. Forseti Alþingis á þessum tíma var Sturla Böðvarsson en núverandi forseti, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, tók efnislega undir ákæruna í svari við fyrirspurn á þinginu í vor.
Tengdar fréttir Mótmælendur tóku sér frest til að lýsa afstöðu sinni Fólkið sem ákært hefur verið vegna mótmæla í Alþingishúsinu fyrir ári síðan og mætti fyrir rétt í dag tók sér allt frest til þess að lýsa afstöðu sinni til ákærunnar þegar þingfesting fór fram í málinu. Tveir hinna ákærðu mættu hinsvegar ekki fyrir dóminn. Næst verður þingað í málinu þann 9. febrúar næstkomandi og þá þurfa sakborningar að lýsa yfir sekt eða sakleysi sínu. 21. janúar 2010 10:09 Ráðherrar og níumenningarnir Alþingi Íslendinga, stofnunin sem fær falleinkunn í nýlegri skýrslu þingmannanefndar, átti frumkvæði að sakamáli sem nú er rekið gegn níu manns fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í fjölmiðlum er yfirleitt vísað til þeirra sem "mótmælenda" og látið að því liggja að hin ákærðu séu einsleitur 18. september 2010 06:00 Bankaráðsseta Láru geri hana vanhæfa Mál níumenninganna svokölluðu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Verjandi fjögurra þeirra fór fram á að settur ríkissaksóknari myndi víkja vegna tengsla hennar við Alþingi. 8. september 2010 12:21 Vill nýjan dómara í máli níumenninga Pétur Guðgeirsson héraðsdómari frestaði í gær fyrirtöku í máli níumenninganna svokölluðu eftir að Ragnar Aðalsteinsson lagði fram kröfu um að hann víki sæti sökum vanhæfis og að málinu verði vísað frá. Níumenningarnir voru kærðir fyrir árás á Alþingi og líkamstjón í búsáhaldabyltingunni í desember fyrir tveimur árum. 18. ágúst 2010 06:00 Hörður Torfa: Ákærurnar eins og olía á eld Hörður Torfason einn af upphafsmönnum Búsáhaldabyltingarinnar segir símann hafa verið rauðglóandi í morgun eftir að fréttir bárust af því að mótmælendurnir níu yrðu ákærðir. Hann segir forgangsröðun Ríkissaksóknara kolranga. 21. janúar 2010 12:13 Hreyfingin: Mótmælendurnir voru að sinna skyldu sinni Hreyfingin vill að Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, dragi til baka kærur gegn hópi fólks sem ruddist inn í Alþingishúsið í desember 2008. Hópurinn hafi einungis verið að sinna sjálfsagðri borgaralegri skyldu sinni. 22. janúar 2010 10:47 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Mótmælendur tóku sér frest til að lýsa afstöðu sinni Fólkið sem ákært hefur verið vegna mótmæla í Alþingishúsinu fyrir ári síðan og mætti fyrir rétt í dag tók sér allt frest til þess að lýsa afstöðu sinni til ákærunnar þegar þingfesting fór fram í málinu. Tveir hinna ákærðu mættu hinsvegar ekki fyrir dóminn. Næst verður þingað í málinu þann 9. febrúar næstkomandi og þá þurfa sakborningar að lýsa yfir sekt eða sakleysi sínu. 21. janúar 2010 10:09
Ráðherrar og níumenningarnir Alþingi Íslendinga, stofnunin sem fær falleinkunn í nýlegri skýrslu þingmannanefndar, átti frumkvæði að sakamáli sem nú er rekið gegn níu manns fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í fjölmiðlum er yfirleitt vísað til þeirra sem "mótmælenda" og látið að því liggja að hin ákærðu séu einsleitur 18. september 2010 06:00
Bankaráðsseta Láru geri hana vanhæfa Mál níumenninganna svokölluðu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Verjandi fjögurra þeirra fór fram á að settur ríkissaksóknari myndi víkja vegna tengsla hennar við Alþingi. 8. september 2010 12:21
Vill nýjan dómara í máli níumenninga Pétur Guðgeirsson héraðsdómari frestaði í gær fyrirtöku í máli níumenninganna svokölluðu eftir að Ragnar Aðalsteinsson lagði fram kröfu um að hann víki sæti sökum vanhæfis og að málinu verði vísað frá. Níumenningarnir voru kærðir fyrir árás á Alþingi og líkamstjón í búsáhaldabyltingunni í desember fyrir tveimur árum. 18. ágúst 2010 06:00
Hörður Torfa: Ákærurnar eins og olía á eld Hörður Torfason einn af upphafsmönnum Búsáhaldabyltingarinnar segir símann hafa verið rauðglóandi í morgun eftir að fréttir bárust af því að mótmælendurnir níu yrðu ákærðir. Hann segir forgangsröðun Ríkissaksóknara kolranga. 21. janúar 2010 12:13
Hreyfingin: Mótmælendurnir voru að sinna skyldu sinni Hreyfingin vill að Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, dragi til baka kærur gegn hópi fólks sem ruddist inn í Alþingishúsið í desember 2008. Hópurinn hafi einungis verið að sinna sjálfsagðri borgaralegri skyldu sinni. 22. janúar 2010 10:47