Enski boltinn

Fábio Aurélio frá í þrjár vikur

Elvar Geir Magnússon skrifar

Fábio Aurélio, leikmaður Liverpool, á við meiðsli að stríða aftan í læri og er búist við að hann verði frá í um þrjár vikur ef þeim sökum. Þessi brasilíski bakvörður fór meiddur af velli gegn Blackburn á sunnudag.

Aurélio hefur verið óheppinn með meiðsli á tímabilinu og missti af byrjun þess vegna meiðsla í hné sem hann hlaut eftir að hafa verið að leika við barnið sitt.

Annars er það að frétta af meiðslalista Liverpool að Glen Johnson er að snúa aftur bráðlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×