Enski boltinn

Konchesky færist nær Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikurinn gegn United gæti hafa verið sá síðasti hjá Koncehsky með Fulham.
Leikurinn gegn United gæti hafa verið sá síðasti hjá Koncehsky með Fulham.

Liverpool er sagt vera nálægt því að kaupa bakvörðinn Paul Konchesky frá Fulham. Það hefur verið eitt af forgangsmálum Roy Hodgson að kaupa nýjan vinstri bakvörð.

Konchesky lék undir stjórn Hodgson hjá Fulham og var Hodgson virkilega ánægður með leikmanninn þar.

Liverpool var einnig orðað við Carlos Salicido, bakvörð PSV Eindhoven, en ætlar frekar að fá Konchesky.

Fleiri félög hafa reynt að næla í Konchesky og Fulham hafnaði áður boði frá Birmingham í leikmanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×