Tevez ósáttur við ákvarðanir og æfingaálag City Elvar Geir Magnússon skrifar 13. apríl 2010 09:45 Carlos Tevez hefur raðað inn mörkum í vetur.
Carlos Tevez, markahrókur Manchester City, hefur hrist upp í hitanum fyrir nágrannaslaginn gegn Manchester United næsta laugardag. Hann gagnrýnir æfingaálag knattspyrnustjórans Roberto Mancini og einnig þá ákvörðun félagsins að nota mynd af sér til að fara í taugarnar á erkifjendunum. Tevez hefur verið frábær í búningi City en hann var ekki ánægður með að Mark Hughes var rekinn. Hann gagnrýnir nú þjálfunaraðferðir Mancini. „Leikmenn eru ekki ánægðir með þetta. Við erum komnir í lokakafla á löngu og erfiðu tímabili. Það eru stórleikir og við erum þreyttir. Samt erum við að æfa tvisvar á dag, á morgnana og síðdeig. Daginn eftir æfum við svo í tvo tíma. Ég skil þetta ekki. En hann er þjálfarinn og ég er leikmaður. Hann ræður. Ég sætti mig við það," sagði Tevez. Argentínumaðurinn notaði einnig tækifærið og sagðist vera óánægður með risaskilti sem sett var upp við borgarmörkin í Manchester. Á því var risamynd og stóð „Velkomin til Manchester". Talið er að City hafi sett þetta skilti upp til að pirra erkifjendur sína í United. „Ég skildi aldrei tilganginn með þessu skilti. Til hvers var þetta? Var þetta til að bjóða mig velkominn til Manchester City eða til að pirra Manchester United? Enginn hefur sagt mér það. Ég skipti mér ekki að þessu en það er mikilvægt að fólk viti að ég kom ekki nálægt þessari ákvörðun. Hefði ég fengið að ráða hefði það ekki verið sett þarna upp. Ég ber virðingu fyrir öllum félögum sem ég hef spilað fyrir. Þetta skilti sýndi ekki virðingu er það? Ég fór ekki frá United til City til að skapa óróleika." Spurður út í brottrekstur Hughes svaraði Tevez: „Eigendur félagsins ráða, þeir eiga þessa peninga. Ef þú spyrð mig hvort mér þótti þetta rétt ákvörðun þá svara ég nei. Ég spila fyrir alla knattspyrnustjóra, ég spila fyrir félagi og virði rétt þeirra sem taka ákvarðanir um breytingar. Þú býrð samt ekki til lið á einni nóttu. Mark hefði átt að fá lengri tíma. Hann er frábær knattspyrnustjóri og mun taka við öðru stórliði einn daginn." Þetta allt saman lét Tevez út úr sér í viðtali við Daily Mail en ekki er líklegt að ummæli hans falli í góðan jarðveg hjá City. Lætin í kringum síðasta grannaslag voru mikil en þá lentu Tevez og Gary Neville í frægum deilum. „Þessar deilur við Gary voru allar í hita leiksins. Þær eru að baki núna. Það eru engin vandamál milli mín og Gary," sagði Tevez sem vildi þó ekkert tjá sig um samskipti sín og Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Fótbolti „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira