Innlent

Háskólar kynna starfsemi sína í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Háskólatorg. Mynd/ Stefán.
Háskólatorg. Mynd/ Stefán.
Í dag kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni.

Í Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Íslands verður á Háskólatorgi, Gimli og Odda í Háskóla Íslands Þá verður á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð í Norræna húsinu.

Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar taka á móti gestum og miðla af reynslu sinni. Einnig verður kynnt margskonar þjónustustarfsemi við nemendur. Búist er við því að yfir 3.000 gestir sæki námskynningu háskólanna til að skoða þær rösklega 500 námsleiðir sem eru í boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×