Erlent

Breskir hermenn grunaðir um heróínsmygl

MYND/AFP

Breska herlögreglan rannsakar ásakanir þess efnis að hermenn hafi staðið í stórfelldum heróíninnfluttningi frá Afganistan til Bretlands.

Varnarmálaráðuneytið breska hefur staðfest við breska ríkisútvarpið BBC að rannsókn sé í gangi en að enn sé um óstaðfestar sögusagnir að ræða. Ásakanirnar ganga út á að hermennirnir hafi flutt Heróín í stórum stíl með herflugvélum á milli landanna og beinist grunurinn að starfsmönnum flugvallanna í Kandahar og á Bastion herstöðinni.

Öryggisgæsla hefur verið aukin á völlunum og fíkniefnaleitarhundar notaðir í meiri mæli en áður. Varnarmálaráðuneytið segist taka ásakanirnar mjög alvarlega og að sögn talsmanns þess munu allir hlutaðeigandi fá hörðustu refsingu, sannist á þá smyglið.

Að sögn BBC hefur rannsóknin staðið í nokkurn tíma án þess að frá því hafi verið greint í fjölmiðlum og eftirlitið hefur einnig aukist til muna. Fíkniefnaleitarhundar voru til að mynda ekki notaðir á flugvöllunum í Afganistan fyrr en í síðasta mánuði. Frá Afganistan koma um 90 prósent alls ópíums sem ræktað er í heiminum en heróín er framleitt úr ópíum.

Talibanar hafa haldið utan um framleiðsluna síðustu árin og fjármagnað baráttuna gegn herliði NATO með sölu ópíums.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×