Bendtner og Walcott gætu spilað með Arsenal um helgina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2010 09:49 Bendtner gæti spilað með Arsenal um helgina. Hann hefur ekkert spilað síðan á HM í sumar. Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir góðar líkur á því að þeir Nicklas Bendtner og Theo Walcott gætu spilað með Arsenal gegn Birmingham á morgun. Þó er talið ólíklegt að Cesc Fabregas verði búinn að ná sér af sínum meiðslum og Wenger reiknar ekki með að hann muni spila um helgina. Bendtner hefur ekkert spilað á tímabilinu en hann hefur átt við þrálát nárameiðsli að stríða. Hann spilaði þó með Dönum á HM í sumar. „Nicklas hefur sýnt hvað hann getur af og til síðan í nóvember í fyrra. En vegna meiðsla sinna hefur hann ekki sýnt neinn stöðugleika. Við höfum ekki séð til hins sanna Nicklas Bendtner í langan, langan tíma," sagði Wenger. „Hann hefur ekki verið svo nálægt sínu besta lengi vel. Hann átti í miklum vandræðum með nárameiðslin en þau eru úr sögunni í dag." „Theo gæti einnig komið við sögu á laugardaginn. Hann mun taka þátt í venjulegri æfingu á morgun [í dag] og gæti vel verið að hann verði í leikmannahópnum." „Það er mjög stutt í að Cesc verði klár en það er ólíklegt að hann spili á morgun. Hann á möguleika á að ná leiknum á þriðjudaginn," bætti Wenger við en þá mætir Arsenal liði Shakhtar Donetsk í Meistaradeild Evrópu. Wenger sagði einnig að Kieran Gibbs væri einnig búinn að ná sér af sínum meiðslum og að hann verði í leikmannahópnum um helgina. Hins vegar eru enn margir frá hjá Arsenal. Þeirra á meðal má nefna Robin van Persie, Tomas Vermaelen, Bacary Sagna og Manuel Almunia. „Sagna og Vermaelen þurfa tíu daga í viðbót, Almunia þarf aðeins nokkra daga en það er eitthvað lengra í Van Persie."
Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina Sport Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira