Gefa þyrstum íbúum Akurholts Latabæjarvatn 16. ágúst 2010 21:02 Forðað frá Kókneyslu. Latabæjarvatnið er án sykurs, sætuefna og rotvarnarefna. LazyTown Go Water drykkir eru einnig með lágt sýrustig og fara vel með tennur að sögn Tómasar.
Hafnfirska vatnsfyrirtækið, Nordic Water, hefur gefið Hönnu Björk Kristinsdóttur og fjölskyldu LazyTown Go Water í ljósi vatnsskorts sem fjölskyldan hefur þurft að búa við í Úlfarsfellinu. Það var Stöð 2 sem sagði frá því á dögunum að fjölskylda Hönnu Bjarkar, sem býr í Akurholtunum í um kílómetra fjarlægð frá nýrri byggð í Úlfarsfellinu, hafi þurft að búa við vatnsskort. Alls sækja fjögur hús í nágrenni fjölskyldunnar yfirborðsvatn í sama brunn og fjölskylda Hönnu, en hefðbundnar vatnsæðar hafa ekki verið lagðar að húsunum. Þau segja brunninn varla hafa getað annað vatnsneyslu íbúanna um langt skeið, en ástandið hafi versnað til muna eftir að Reykjavíkurborg leigði út hagabeit á landinu fyrir neðan, þar sem hestamenn brynna til viðbótar hrossum úr brunninum og lindin tæmist. „Það er í raun hrein skelfing að vakna hvern einasta dag og hafa áhyggjur af því hvort við höfum vatn eða ekki af því að búum í 113 Reykjavík," sagði Hanna. Hún og eiginmaður hennar geta því ekki gefið börnunum ferskt vatn. „Þetta er orðið spurning hvort sé gáfulegra að gefa þeim kók með kvöldmatnum af því að það er undir gæðaeftirliti en vatnið ekki," sagði Hanna Björk, en forstjóra Nordic Water, Tómasi Hilmari Ragnarssyni, þótti vont að heyra það. Hann ákvað því í nafni fyrirtækisins að gefa fjölskyldunni nægt Latabæjarvatn, eins og það er kallað, svo börnin þyrftu ekki að drekka kók með kvöldmatnum. Vatnið er átappað vatn úr Kaldárbotnum en að sögn Tómasar þá væri að sjálfsögðu best ef fjölskylda Hönnu Bjarkar fengi aðgang að hreinu drykkjarvatni beint úr krananum heima. Fjölskyldan hefur óskað eftir því við Orkuveitu Reykjavíkur að tengja húsin við vatnsveitulagnir, en því hefur Orkuveitan hafnað þar sem ekki liggi fyrir deiliskipulag á svæðinu. Vilji húsin tengjast dreifikerfi fyrirtækisins verði þau að gera það á eigin kostnað.
Tengdar fréttir Íhuga að gefa börnunum kók vegna vatnsskorts Fjölskylda í Úlfarsfelli er orðin langþreytt á viðvarandi vatnsskorti og gruggugu vatni úr krönunum. Hún rekur vatnsskortinn til hrossa sem ganga á brunnvatni, en segir aðgang að hreinu vatni vera mannréttindi. 15. ágúst 2010 19:25 Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira
Íhuga að gefa börnunum kók vegna vatnsskorts Fjölskylda í Úlfarsfelli er orðin langþreytt á viðvarandi vatnsskorti og gruggugu vatni úr krönunum. Hún rekur vatnsskortinn til hrossa sem ganga á brunnvatni, en segir aðgang að hreinu vatni vera mannréttindi. 15. ágúst 2010 19:25