Innlent

Gefa þyrstum íbúum Akurholts Latabæjarvatn

Forðað frá Kókneyslu. Latabæjarvatnið er án sykurs, sætuefna og rotvarnarefna. LazyTown Go Water drykkir eru einnig með lágt sýrustig og fara vel með tennur að sögn Tómasar.
Forðað frá Kókneyslu. Latabæjarvatnið er án sykurs, sætuefna og rotvarnarefna. LazyTown Go Water drykkir eru einnig með lágt sýrustig og fara vel með tennur að sögn Tómasar.

Hafnfirska vatnsfyrirtækið, Nordic Water, hefur gefið Hönnu Björk Kristinsdóttur og fjölskyldu LazyTown Go Water í ljósi vatnsskorts sem fjölskyldan hefur þurft að búa við í Úlfarsfellinu.

Það var Stöð 2 sem sagði frá því á dögunum að fjölskylda Hönnu Bjarkar, sem býr í Akurholtunum í um kílómetra fjarlægð frá nýrri byggð í Úlfarsfellinu, hafi þurft að búa við vatnsskort.

Alls sækja fjögur hús í nágrenni fjölskyldunnar yfirborðsvatn í sama brunn og fjölskylda Hönnu, en hefðbundnar vatnsæðar hafa ekki verið lagðar að húsunum.

Þau segja brunninn varla hafa getað annað vatnsneyslu íbúanna um langt skeið, en ástandið hafi versnað til muna eftir að Reykjavíkurborg leigði út hagabeit á landinu fyrir neðan, þar sem hestamenn brynna til viðbótar hrossum úr brunninum og lindin tæmist.

„Það er í raun hrein skelfing að vakna hvern einasta dag og hafa áhyggjur af því hvort við höfum vatn eða ekki af því að búum í 113 Reykjavík," sagði Hanna. Hún og eiginmaður hennar geta því ekki gefið börnunum ferskt vatn.

„Þetta er orðið spurning hvort sé gáfulegra að gefa þeim kók með kvöldmatnum af því að það er undir gæðaeftirliti en vatnið ekki," sagði Hanna Björk, en forstjóra Nordic Water, Tómasi Hilmari Ragnarssyni, þótti vont að heyra það.

Hann ákvað því í nafni fyrirtækisins að gefa fjölskyldunni nægt Latabæjarvatn, eins og það er kallað, svo börnin þyrftu ekki að drekka kók með kvöldmatnum.

Vatnið er átappað vatn úr Kaldárbotnum en að sögn Tómasar þá væri að sjálfsögðu best ef fjölskylda Hönnu Bjarkar fengi aðgang að hreinu drykkjarvatni beint úr krananum heima.

Fjölskyldan hefur óskað eftir því við Orkuveitu Reykjavíkur að tengja húsin við vatnsveitulagnir, en því hefur Orkuveitan hafnað þar sem ekki liggi fyrir deiliskipulag á svæðinu. Vilji húsin tengjast dreifikerfi fyrirtækisins verði þau að gera það á eigin kostnað.




Tengdar fréttir

Íhuga að gefa börnunum kók vegna vatnsskorts

Fjölskylda í Úlfarsfelli er orðin langþreytt á viðvarandi vatnsskorti og gruggugu vatni úr krönunum. Hún rekur vatnsskortinn til hrossa sem ganga á brunnvatni, en segir aðgang að hreinu vatni vera mannréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×