Enski boltinn

Squillaci á leiðinni til Arsenal?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Sebastien Squillaci er nú sterklega orðaður við Arsenal. Arsene Wenger vill bæta við sig varnarmanni fyrir lok félagaskiptagluggans og landi hans er þar einna efstur á blaði.

Squillaci hefur óskað eftir því að spila ekki með Sevilla í Meistaradeildinni og ýtir það undir sögurnar.

Squillaci er þrítugur miðvörður sem kostar um átta milljónir evra.

Hann lék með Monaco og Lyon áður en hann fór til Spánar.

Sevilla hefur staðfest að tilboð hafi borist í Squillaci en félaginu finnst það of lágt. Viðræður ættu að halda áfram þrátt fyrir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×