Enski boltinn

Sir Alex óttast Arsenal meira en Chelsea

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ferguson með létta innanfótarspyrnu.
Ferguson með létta innanfótarspyrnu.

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, telur Arsenal sé harðasti keppinautur félagsins um enska meistaratitilinn. Hann er hræddari við þá rauðu en Chelsea.

Manchester United er á toppi deildarinnar með 66 stig en Chelsea og Arsenal eru með 64 stig og Chelsea á leik til góða.

„Arsenal hefur verið ógnarsterkt að undanförnu og mig grunar að þeir gætu orðið okkar helsti keppinautur um toppsætið. Við eigum eftir að mæta Chelsea á heimavelli og það verður hörkuleikur. En við erum líka að berjast við Arsenal og þeir eru líklegir ef lykilmenn haldast heilir," sagði Ferguson.

Frammistaða Wayne Rooney í liði United hefur ekki farið framhjá nokkrum manni og veðjar Ferguson á að hann verði valinn leikmaður ársins, bæði af leikmönnum deildarinnar og íþróttafréttamönnum á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×