Ísrael og Bandaríkin ásökuð 13. janúar 2010 04:00 Masoud Ali Mohammadi Var í hópi stjórnarandstæðinga sem mótmælt hafa síðustu mánuði. fréttablaðið/AP
Írönsk stjórnvöld segja Ísrael og Bandaríkin hafa staðið á bak við morð á eðlisfræðingnum Masoud Ali Mohammadi, prófessor við háskólann í Teheran. Ali Mohammadi var fimmtugur og hafði tekið virkan þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum, sem stúdentar við háskólann hafa verið í forystu fyrir. Hann lét lífið þegar fjarstýrð sprengja sprakk fyrir utan heimili hans í gærmorgun, þegar hann var að leggja af stað í vinnuna. Prófessorinn var á lista yfir 240 stuðningsmenn stjórnarandstöðuleiðtogans Mirs Hosseins Moussavi, sem bauð sig fram gegn forseta Írans, Mahmoud Ahmadinedjad, í forsetakosningunum í sumar. Moussavi var úrskurðaður sigurvegari, en stjórnarandstæðingar saka stjórnina um að hafa hagrætt úrslitum kosninganna. Óvenju fjölmenn og langvarandi mótmæli hafa síðan verið áberandi í Íran, þar sem fáir höfðu áður þorað að standa uppi í hárinu á stjórnvöldum. Ali Mohammad var kjarneðlisfræðingur, en árið 2007 lét annar íranskur kjarneðlisfræðingur lífið af völdum gaseitrunar. Ali Shirzadian, talsmaður kjarnorkustofnunar Írans, segir að Ali Mohammed hafi engan þátt tekið í kjarnorkuáformum landsins. - gb
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira