Skálmöld í uppsiglingu á Haítí Óli Tynes skrifar 19. janúar 2010 12:00
Glæpagengi eru ekki neitt nýtt fyrirbrigði á Haítí og það hefur aðeins verið talið tímaspursmál hvenær þau færu af stað aftur eftir jarðskjálftann. Nú er það að gerast. Í gær kom margsinnis til átaka þar sem lögreglan reyndi að koma í veg fyrir að menn færu um rænandi og ruplandi. Lögreglumenn skutu margsinnis af byssum sínum upp í loftið til þess að dreifa mannfjölda. Það eru raunar ekki bara glæpamenn sem fara um með þessum hætti. Margir almennir borgarar hafa misst þolinmæðina þar sem þeim finnst aðstoð berast seint og illa. Við það bætist svo að um 4000 forhertir glæpamenn losnuðu úr fangelsi í jarðskjálftanum og leika nú lausum hala. Ríkislögreglustjóri landsins segir að lögreglan sé illa undir þetta búin. Þúsundir lögregluþjóna fórust eða slösuðust í jarðskjálftanum auk þeirra sem saknað er. Um 4000 lögregluþjónar voru í Port au Prince fyrir skjálftann en þeir eru nú innan við fimmtánhundruð. Bandaríkjamenn hafa sent þúsundir hermanna til landsins en þeirra hlutverk er að aðstoða við björgunarstarfið. Sendiherra Bandaríkjanna á Haítí sagði í gær að fyrsta víglínan væri lögregla landsins og önnur víglínan væri gæslulið Sameinuðu þjóðanna á eynni. Hann sagði þó að Bandaríkjamenn myndu veita aðastoð ef allt anna þryti.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira