Ég vil komast þangað þar sem ég verð heimsklassa leikmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2010 11:30 Neymar fagnar sínu fyrsta marki fyrir brasilíska landsliðið. Mynd/AP
Brasilíumaðurinn Neymar hefur slegið í gegn með bæði brasilíska liðinu Santos, sem og brasilíska landsliðinu. Nú dreymir kappann um að spila fyrir enska liðið Chelsea en hann var orðaður við ensku meistarana í haust. Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla bauð Chelsea án árangurs 25 milljónir punda í þennan 18 ára framherja í haust en tilboðið fékk hörð viðbrögð í Brasilíu þar sem stuðningsmenn, fyrrum stórstjörnur og meira að segja forseti Brasilíu tókst að sannfæra Neymar að spila áfram hjá Santos. Neymar skrifaði í kjölfarið undir nýjan samning við Santos til ársins 2015 og hefur nú gert 33 mörk í 47 leikjum fyrir Santos á árinu 2010. Neymar hefur þó ekki gleymt drauminum um að fá tækifæri til þess að spila í ensku úrvalsdeildinni. „Leikmaður sem vill vinna jafnmikið og ég á að spila í bestu liðum heims eins og Chelsea. Santos er mitt félag og ég elska að spila þar. Málið er bara að hér er deildin ekki eins sterk og enska úrvalsdeildin," sagði Neymar. „Ég vil komast þangað þar sem ég verð heimsklassa leikmaður. Ég hef metnað fyrir því að verða besti fótboltamaður í heimi og ég vil fá tækifæri til að spila í stærstu keppnunum," sagði Neymar fullur sjálfstraust eins og vanalega. „Ég horfi alltaf á ensku deildina ef ég get. Ég hef gaman af hraðanum og hversu leikurinn er beinskeyttur. Chelsea hefur frábæra leikmenn eins og Didier Drogba og Frank Lampard og væri mjög spenntur að fá að spila með þeim," sagði Neymar en til að svo verði þarf hann að koma fljótlega á Brúnna því ferill beggja þessara kappa er farinn að styttast í annan endann.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Meiddist í Portúgal Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira