Erlent

Hátt settur Hamas maður felldur

Ísraelskir hermenn felldu í nótt háttsettann herforingja í Hamas hreyfingunni á Vesturbakkanum. Maðurinn er sagður hafa borið ábyrgð á árásum í lok ágúst á Vesturbakkanum þar sem fjórir ísraelskir landnemar voru felldir.

Ísraelsmenn hafa síðan þá leitað hryðjuverkamannanna og nú segjast þeir hafa fellt foringjann. Síðustu vikur hefur eldflaugaárásum frá Gaza yfir til Ísrael fjölgað en Hamas samtökin eru andsnúin friðarviðræðum sem nú standa yfir á milli Ísraela og Palestínumanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×