Loftslagsvísindamenn teknir til rannsóknar Óli Tynes skrifar 11. febrúar 2010 13:50 Að hlýna eða ekki að hlýna, það er spurningin.
Opinber rannsókn hefst í dag á því hvort loftslagsvísindamenn hafi hagrætt niðurstöðum rannsókna á loftslagsbreytingum. Þeir hafa einnig verið sakaðir um að hafa gert samsæri gegn gagnrýnendum sínum, að reyna að koma í veg fyrir umræðu um verk sín og um að taka sig saman um að virða ekki lög um upplýsingafrelsi. Segja má að þetta hafi hafist þegar birtir voru tölvupóstar sem fóru á milli vísindamanna víða um heim og vísindamanna við University of East Anglia. Skólinn hefur verið leiðandi í loftslagsrannsóknum um langt skeið. Sá póstur þótti ekki fallegur og varð til þess að prófessor Phil Jones forstöðumaður loftslagsdeildar skólans vék úr starfi meðan rannsókn færi fram. Ekki tók svo betra við þegar í ljós kom að spár Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna um bráðnun jökla í Himalayafjöllum reyndust tóm vitleysa. Einnig var hrakið að rekja mætti tíða fellibyli og aðrar veðuröfgar til hlýnandi loftslags. Sú hlýnun er reyndar hætt, en vísindamenn segja að hún hefjist aftur eftir einhver ár. Stjórnandi rannsóknarinnar á loftslagsvísindamönnunum er Sir Muir Russell. Hann hefur engin fyrri tengsl við loftslagsvísindi eða við East Anglia háskólann. Margir lofslagsfræðingar óttast að Climategate skandalinn eins og þetta er kallað verði til þess að draga úr trúverðugleika á áratuga rannsóknum sem þrátt fyrir allt hafi verið býsna traustar. Rannsókninni á að ljúka í vor.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira