Leyniskjalið gert opinbert 11. febrúar 2010 04:00 Binyam Mohamed var sendur heim frá Guantanamo árið 2009 eftir að allar ákærur á hendur honum höfðu verið felldar niður.nordicphotos/AFP
Bresk stjórnvöld neyddust í gær til að aflétta leynd af skjölum, þar sem lýst er illri meðferð á breskum ríkisborgara í fangabúðum Bandaríkjahers á Kúbu. Áfrýjunardómstóll kvað upp þann úrskurð að stjórnvöldum væri ekki stætt á því að halda skjölunum leyndum. Fanginn heitir Binyam Mohamed. Hann er fæddur í Eþíópíu en hefur búið á Englandi frá unglingsárum. Hann var handtekinn í Pakistan árið 2002, segist hafa verið pyntaður þar og einnig í Marokkó áður en hann var fluttur til Guantanamo árið 2004, sakaður um að hafa tekið þátt í að skipuleggja árásir á bandarísk fjölbýlishús með liðsmönnum hryðjuverkasamtakanna Al Kaída. Allar ásakanir á hendur honum voru þó felldar niður og hann var sendur til Bretlands á síðasta ári. Leyniskjalið sem bresk stjórnvöld hafa undir höndum er stutt lýsing, fengin frá Bandaríkjamönnum, á þeirri meðferð sem hann mátti sæta þegar bandarískir leyniþjónustumenn yfirheyrðu hann í Guantanamo-búðunum. Þar kemur fram að hann hafi meðal annars verið sviptur svefni langtímum saman og á meðan hafi honum verið hótað leynt og ljóst, til dæmis að hann yrði látinn í hendur öðrum öflum þar sem hann ætti nánast vísan dauða. Í skjalinu er komist að þeirri niðurstöðu að þessi meðferð hljóti að teljast í það minnsta grimmileg, ómannúðleg og niðurlægjandi.- gb
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira